1939

Mars
15-16. mars. Þjóðverjar taka Tékkland.
28. mars.  Spænska borgarastríðinu lýkur með sigri Franco.

Maí
22. maí.  Stálsáttmálinn – Þýskaland og Ítalía heita hvoru öðru
hernaðarstuðningi í stríði.

Ágúst
     23. ágúst.   Griðasáttmáli Þjóðverja og Sovétríkjanna. Trygging fyrir vinsamlegu hlutleysi ef annar aðilinn færi í stríð. Leynileg skipting ríkjanna á löndum í austri. Sovétmenn með áhrif í austurhluta Póllands, Eistlands, Lettlands, Litháen, Finnlands, Basarabia (núna Moldavia)
25. ágúst.  Bretar undirrita stuðningssáttmála við Pólverja sem staðfesti trygginguna frá því í mars sama ár.

September

1. september. Þjóðverjar gera innrás í Pólland.

3. september. Bretland, Frakkland, Ástralía og Nýja Sjáland lýsa yfir stríði á hendur Þjóðverjum.

4. september. Bretland gerir loftárás á þýska flotann.


Nóvember
30. nóvember. Sovétríkin ráðast á Finna – finnska vetrarstríðið hefst.